top of page

Haustferð til Lissabon

Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir

Haustferð til Lissabon á vegum Félags eldri borgara, 18.-22 september  2023
Fararstjóri Lilja Hilmarsd

 

Lissabon dagana 18.- 22. september

18.sept. 

Flug með PLAY  til Lissabon kl. 15.00.  

Við lendingu bíður rúta eftir hópnum sem flytur alla á hotel Pestana CR 7,  mjög fínt 4* hotel  og gríðarlega vel staðsett.

 

19.sept. 

Skoðunarferð um borgina hefst kl. 10.00 og stendur yfir í fjóra tíma.  Farið verður vítt og breitt um borgina og það markverðasta skoðað.  Um kvöldið fara allir saman á FADO kvöld en Portúgal er heimsfrægt fyrir FADO tónlist sína.  Þríréttaður kvöldverður.

20.sept.  

Byrjum daginn á að fara saman í gönguferð áður en þið fáið daginn frjálsan og getið skoðað  ykkur betur um og farið  á eitthvert hinna fjölmörgu safna sem eru í borgina t.d. Sjóminjasafnið/siglingasafnið þar sem módel af gömlu konungabátunum frá 17 og 18 öld – og Gulbenkian safnið sem kennt er við stofnenda sinn. Þökk sé þessum ágæta manni fyrir eitt stærsta safn dýrmætra listaverka í heimi.  

Kvöldið er frjálst.

21.sept   

Eftir morgunverð munum við skoða hið fræga Alfama hverfi.  Við notum TUK TUK farartæki þeirra í Lissabon með leiðsögn og njótum litlu torganna, garðanna og útsýnisins.

Um kvöldið förum við saman út að borða á fínum veitingastað í göngufæri frá okkar hóteli Fáum þríréttaðan mat - bjór,  vatn og kaffi er innifalið - en ekki vín. Einnig innifalið fyrir þá sem vilja skoða bjórgerðarsafn,   sem er í sömu húsakynnum og veitingastaðurinn.

22.sept.  

Losum herbergin kl 12.00 og leggjum af stað kl. 13 með allan okkar farangur í rútuna  í skemmtilega og fróðlega skoðunarferð um yndislegt landslag Portugal og á vegi okkar verður strandbærinn Cascais, hið glæsilega hérað Sintra þar sem konungar Portúgal byggðu hallir sínar m.a. litríku Sintra Pena höllina og National Palace sem við munum skoða.

 

Förum líka á vestasta höfða meginlands Evrópu, Copa da Roca.

Við eyðum um 5-6 klukkustundum í þessa skoðunarferð og  endum út á flugvelli kl 19 og erum þá tilbúin til brottfarar.

 

Pakkaverð pr mann í tvíbýli er kr 167.800.- 

 

Innifalið er: flug með PLAY með 1x20 kg tösku fyrir hvert herbergi + 1xhandfarangur pr mann (42x32x25 cm) eða bakpoka.  Gisting á 4* hóteli Pestana CR7 með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. 

Kostnaður á eins manns herbergi er kr 49.700.- 

Viðbótargjald fyrir skoðunarferðir og kvöldverði í Lissabon:

a) skoðunarferðin um borgina þar sem portugalskur leiðsögumaður fer með okkur,

b) FADO sönginn og kvöldverð að hætti heimamanna,

c) aftur sameiginlegan kvöldverð í nágrenni hótelsins,

d) og skoðunarferðina þann 16 september þar sem portugalskur leiðsögumaður er líka með og aðgangur í National Palace er samtals 170 Evrur , sem greiðast þegar út er komið.  

18. september - 22. september 

Frábært verð:  
kr 167.800 

pr mann í tvíbýli
  • Facebook Basic Black
bottom of page